Lionsklúbburinn Engey styrkir Ljósið um nýjan snyrtistól

Við í Ljósinu fengum frábæra heimsókn í mars frá nokkrum konum úr Lionsklúbbnum Engey. Þær færðu Ljósinu rausnarlegan styrk sem fer upp í nýjan snyrtistól, sem mun nýtast vel í snyrtimeðferðið fyrir þjónustuþega. Gjöfin kemur á afar góðum tíma, þar sem lengi hefur staðið til að endurnýja snyrtistólinn.

Innilegar þakkir fyrir stuðninginn, hlýhuginn og þá fallegu hugsun sem liggur að baki gjöfinni.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.