Bleikt hlaup hjá hlaupahópi FH

Hlaupahópur FH heldur árlega svokallað „Bleikt hlaup“ til styrktar góðgerðarmálum eða einstaklingum sem eru að ganga í gegnum erfiða tíma. Í þetta skipti var ákveðið að styrkja Ljósið og erum við hjartanlega þakklát fyrir hlýhuginn.

Það geta allir tekið þátt í hlaupinu sér að kostnaðarlausu, en óskað eftir frjálsum framlögum frá þátttakendum til styrkar því málefni sem er hverju sinni. Að hlaupi loknu hittast svo allir inni í Kaplakrika og gæða sér á veitingum. Að sögn Björns hefur verið mjög góð mæting í hlaupið síðustu ár.

Samtals söfnuðust 250.000 krónur til styrktar Ljósinu. Það var yndislegt að fá þau í heimsókn í Ljósið og við þökkum kærlega fyrir stuðninginn.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.