Öskudagurinn er miðvikudaginn 18. febrúar og við í Ljósinu ætlum að gera okkur smá dagamun og hafa gaman saman!
Starfsfólk Ljóssins mætir í sínu skemmtilegasta pússi og við hvetjum þjónustuþega okkar til að dusta rykið af hattinum, slæðunni, trúðanefinu eða skemmtilegum búningi og eiga með okkur glaðan dag.
Hlökkum til að sjá ykkur og fagna Öskudeginum saman.

Ein skemmtileg mynd af starfsfólki Ljóssins frá því á Öskudeginum í fyrra.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






