Kiwanisklúbburinn Eldey styrkir barnastarf Ljóssins

Kiwanisklúbburinn Eldey er einn af mörgum klúbbum innan alheimssamtaka sjálfboðaliða sem hafa það sameiginlega markmið að bæta heiminn með þjónustu í þágu barna. Nýverið heimsóttu þær Helga Jóna Sigurðardóttir, iðjuþjálfi og fjölskyldumeðferðarfræðingur hjá Ljósinu, og Guðrún Friðriksdóttir, iðjuþjálfi hjá Ljósinu, klúbbinn þar sem þær kynntu barnastarf Ljóssins og mikilvægi þess.

Í kjölfar heimsóknarinnar afhenti Kiwanisklúbburinn Eldey Ljósinu styrk til barnastarfsins að upphæð 700.000 kr.

Við í Ljósinu færum Kiwanisklúbbnum Eldey innilegar þakkir fyrir hlýjan áhuga á starfsemi okkar og hjartans þakkir fyrir þennan mikilvæga styrk.

(Myndirnar eru teknar frá Facebook síðunni: Kiwanisklúbburinn Eldey)

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.