Neistahúfur afhentar – samfélagsverkefni prjónahóps Ljóssins

Prjónahópur Ljóssins afhenti í dag Jónínu Sigríði Grímsdóttur frá Neistanum, styrktarfélagi hjartveikra barna, neistahúfur. Undanfarnar vikur hefur prjónahópurinn unnið að því að prjóna rauðar húfur sem afhentar verða öllum nýfæddum börnum vikuna 7.–14. febrúar. Þessi vika er alþjóðleg vitundarvika um meðfædda hjartagalla og eru rauðar húfur gefnar nýfæddum börnum þessa daga til að heiðra baráttu hjartveikra barna.

Margir sjálfboðaliðar hafa lagt sitt af mörkum og prjónað húfur, og við í Ljósinu erum afar stolt að vera hluti af þeim hópi. Það var afar gaman að fá að taka þátt í þessu fallega verkefni og styðja við mikilvæga vitundarvakningu.

Í lokin viljum við þakka Icewear kærlega fyrir að gefa garn í verkefnið. Jafnframt viljum við senda hlýjar hugsanir, styrk og samstöðu til allra barna með meðfæddan hjartagalla og fjölskyldna þeirra.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.