Erum við að leita að þér?
Við í Ljósinu erum að leita að iðjuþjálfa! Starfið er mjög fjölbreytt og felst í að hámarka daglega færni og auka þannig lífsgæði þjónustuþega. Mikil þróunarvinna á sér stað þar sem miðstöðin er ung og tekur sífelldum breytingum.
Vinnuumhverfið er líflegt og skemmtilegt. Það veitir einnig tækifæri til að taka þátt í mótun þjónustu við krabbameinsgreinda á Íslandi.
Umsóknarfrestur er til 23. janúar.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






