Árið 2026 fer fallega af stað hjá okkur í Ljósinu en hjónin Eyrún Ísfold og Sturla Rafn byrjuðu nýja árið á því að koma og færa okkur peningagjöf.
Þau hjónin héldu upp á 75 ára afmæli þeirra beggja í október síðast liðnum og afþökkuðu þar gjafir en hvöttu gesti þess í stað að leggja Ljósinu til pening sem og þau bættu við framlagi frá sér líka.
Við þökkum þessum myndarhjónum kærlega fyrir ánægjulega heimsókn.

Á myndinni er Erna Magnúsdóttir framkvæmdarstýra Ljóssins og Eyrún Ísfold Gísladóttir og Sturla Rafn Guðmundsson.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






