Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, endaði síðasta ár sannarlega með stæl. Eftir magnað ár í fótboltanum lét hún gott af sér leiða með því að bjóða upp áritaða landsliðstreyju úr leik Íslands og Þýskalands og láta allan ágóða renna til Ljóssins.
Guðmundur Kristjánsson, kenndur við Brim, keypti treyjuna á eina milljón króna og mættu þau Glódís í Ljósið á Þorláksmessu til að afhenda upphæðina formlega og fá að kynnast starfseminni. Erna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Ljóssins, tók við styrknum ásamt Ástu Einarsdóttur úr stjórn Ljóssins. Við þökkum Glódísi og Guðmundi innilega fyrir þetta rausnarlega framlag sem mun nýtast Ljósinu til að halda áfram mikilvægri starfsemi sinni.
Við óskum öllum gleðilegs árs og þökkum fyrir stuðninginn! 🌟
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.