Lionsklúbburinn Keilir hefur ákveðið að leggja sitt af mörkum til að styðja við starfsemi Ljóssins með því að selja súkkulaðidagatöl fyrir jólin 2024. Ágóði af sölunni mun renna til Ljóssins og Krabbameinsfélags Íslands.
Þetta verkefni er liður í 50 ára afmælisundirbúningi Lionsklúbbsins Keilis, sem verður haldið hátíðlegt í apríl 2025.
Salan er hafin!
Við hvetjum alla landsmenn til að taka þátt og styðja þetta frábæra málefni með því að kaupa súkkulaðidagatal frá Lionsklúbbnum Keili. Þetta er einstaklega skemmtileg leið til að koma sér í hátíðarskap, njóta góðgætis, og styrkja í leiðinni það góða starf sem Ljósið sinnir daglega.
Ljósinu þykir afar vænt um þetta framtak og hlökkum við til að fagna þessum áfanga með Lionsklúbbnum Keili á komandi afmælisári.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.