Skapandi flæðidagbókargerð í september

Við byrjum haustið á spennandi handverki en þá munu Bogga og Alda bjóða upp á skapandi flæðidagbókargerð! Í raun fáum við að kynnast tvennskonar dagbókarformi. Annars vegar er það flæðidagbók sem margir kannast við á ensku sem Bullet journaling en hins vegar komum við til með að læra um augnablik, eða glimmering eins og það útleggst á ensku þar sem útbúin er bók sem nýtist okkur til að halda um þessi augnablik sem gleðja og næra.

Alda Pálsdóttir iðjuþjálfi verður með fyrirlestur um hvernig hægt sé að nýta bæði þessi dagbókaform til að styðja við taugakerfið. Bogga okkar mun sjá um að kalla fram sköpunarkraftana.

Smelltu hér til að lesa meira um taugakerfið og hvernig dagbókarformið getur haft jákvæð áhrif á þína líðan.

 

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.