Maraþondagurinn hófst snemma hjá okkur að vanda á laugardag þegar starfsfólk Ljóssins stillti upp fyrir árlegu klappstöðina JL húsið. Gríðarlegur fjöldi kom við og hjálpaði okkur við að klappa og fastagestir nefndu að þau hefðu aldrei séð jafn marga mæta til klapps. Það endurspeglast í því að við höfum fengið miklar þakkir frá hlaupagörpum, bæði okkar og annarra félaga, fyrir allt peppið!
Við viljum senda öllum þeim sem komu og klöppuðu, stöppuðu, góluðu, sungu, og gáfum fimmur, kærlega fyrir komuna – Þvílíka gleðin!
Hér má finna myndir úr klappgleðinni!
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.