Næstu tvær vikur munu viðtöl hjá fagaðilum fara að hluta til í gegnum samskiptaforritið Kara Connect.
Ef þú ferð í viðtal í gegnum Köru Connect munt þú fá boð um fundartíma frá fagaðila í pósti. Klukkustund fyrir fund færð þú svo áminningu um fundinn svo þú getir komið þér fyrir í rólegu umhverfi fyrir framan tölvuna.
Til að mæta á fundinn smellir þú einfaldlega á hlekkinn í póstinum.
Eini búnaðurinn sem þörf er á til að nýta fjarþjónustu Ljóssins er tölva með hljóðnema og myndavél. Best er að opna hlekkinn í Chrome vafra.
Kara Connect er vottað af landlækni og stenst kröfur persónuverndarlaga (GDPR).
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.