Til að tryggja áframhaldandi endurhæfingarstarf í Ljósinu samhliða Covid-19 biðjum við alla sem erindi eiga í Ljósið að setja upp grímu þegar komið er í húsakynni okkar.
Verið er að leggja grunninn að fyrirkomulagi í viðtölum og skoða með hvaða móti hægt sé að bjóða upp á viðtöl án gríma.
Einnota grímur eru í afgreiðslu Ljóssins og í þjálfunarsal.
Að setja á sig einnota grímu:
- Sprittaðu hendur
- Taktu grímu úr búnkanum
- Settu á þig
- Ekki fikta í grímunni
Að taka af sér einnota grímu:
- Sprittaðu hendur áður en þú tekur niður grímuna
- Ekki leggja grímuna á sameiginlegan flöt
- Ef þú leggur á sameiginlegan flöt þarf að sótthreinsa flötinn
- Farga þarf grímum í sérmerktar fötur sem finna má í afgreiðslu.
- Sprittaðu hendur
Fjölnota, þriggja laga grímur má nota að hámarki í 4 tíma. Þarf að þvo!
Að setja á sig fjölnota grímu:
- Sprittaðu hendur
- Taktu grímu úr hreinum poka
- Settu á þig
- Ekki fikta í grímunni
Að taka af sér fjölnota grímu:
- Sprittaðu hendur áður en þú tekur niður grímuna
- Ekki leggja grímuna á sameiginlegan flöt
- Ef þú leggur á sameiginlegan flöt þarf að sótthreinsa flötinn
- Settu grímu í hreinan poka
Einnota hanskar: Spritt og handþvottur skipta mestu máli. Hanskar notum við í þjálfunarsal og ef verið er að þrífa eftir aðra.
Við minnum einnig alla á að spritta áður en farið er í kaffivélina.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.