Vegna nýrra sóttvarnarreglna verður Ljósið opið samkvæmt stundaskrá en nú þarf að bóka í suma tíma.
Tækjasalur – Bóka þarf tíma í tækjasal, hámark 2 x í viku á hvern.
Jóga – Bóka þarf tíma í jóga. Vinsamlegast komið með eigin púða og teppi í tímana.
Gönguhópur – Það þarf ekki að skrá sig í gönguna.
Handverk & myndlist – Ekki þarf að bóka tíma í bili.
Vinsamlegast hafið samband við móttöku í síma 561-3770 til að bóka tíma. Gætum sérstaklega vel að sóttvörnum.
Alls ekki mæta ef eftirfarandi á við:
- Ef þið hafið verið að ferðast erlendis nýlega
- Ef grunur er um smit
- Ef þið eða einhver í ykkar nánasta umhverfi eruð með flensulík einkenni
Virðum tveggja metra regluna í hvívetna.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.