Þriðjudaginn 13. nóvember hefst að nýju jafningjahópur fyrir unga maka. Markmiðið með þessum hópi er að gefa mökum þeirra sem greinst hafa með krabbamein, tækifæri til að hitta aðra í svipuðum sporum og tjá sig, en nánustu aðstandendur hafa oft á tíðum mikla þörf fyrir stuðning af þessu tagi.
Til að byrja með verða skiptin fjögur, þ.e. á þriðjudögum frá kl. 17 – 18:30 og verður fyrsta skiptið þriðjudaginn 13. nóvember. Næstu skipti verða svo; (13. nóv.) – 20. nóv. – 27. nóv. – 4. des. Fundarstaður er í Ljósinu við Langholtsveg.
Hópurinn starfar undir handleiðslu Sigrúnar Þóru Sveinsdóttur, sálfræðings.
Skráning er í síma 561-3770 eða með því að senda tölvupóst á Ljósið.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.