Á myndinni ( frá vinstri )eru: Jón R. Sigurjónsson ( með stafinn ), Magnús Tryggvason, Þórður Guðmundsson, Erna Magnúsdóttir, forstöðukona Ljóssins, Guðmundur Jón Helgason og Sigurður Tómasson
Síðastliðinn vetur kom beiðni frá Ljósinu um aðstoð við uppbygginu á garði, sem er við húsið, en ráðist var í þær framkvæmdir snemma í vor með því að breyta og opna neðstu hæð hússins út í garðinn og setja þar upp aðstöðu fyrir þá sem koma þar til afþreyingar.
Var þvi ákveðið að styrkja Ljósið við þær framkvæmdir, og ákvað klúbburinn að gefa efni í skjólveggi og timburpall að advirði Kr. 620.000,- sem afhent var formlega nú í september 2013. Ljósið bauð lionsfélögum uppá kaffi og kökur í tilefni afhendingarinnar.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.