Nýr gönguhópur undir stjórn Hauks sjúkraþjálfara hefst föstudaginn 31. maí
kl 13:00. Eins og í fyrra fer Haukur úr Hreyfingu á föstudögum og þjálfar ykkur
til að ganga á létta leið þann 28 júní nk.Hugmyndin er að ganga Búrfellsgjá í Hafnarfirði.
Næsta ganga 21 júní kl. 13:00 – hittumst við Olísstöðina v. Rauðavatn
Fjölskylduganga 28 júní kl. 13:00 – Búrfellsgjá í Hafnarfirði – endilega takið fjölskylduna með…
Haukur hvetur ykkur sem ætlið að vera með að taka stafagönguna á miðvikudögum kl 10:00 líka , þá verður orkan ennþá meiri.
Mæting Kl:13:00
31 maí – mæting við Skautahöllina í Laugardal
07 júní – mæting við sundlaug Seltjarnarness
14 júní – mæting við rafstöðina í Elliðárdal
21 júní – mæting við Olís við Rauðavatn
28 júní – Gönguferðin góða – ( Haukur kom með hugmynd um að fara Búrfellsgjá í Hafnarfirði ) Það er ekki fjall heldur skemmtileg gönguleið sem allir ættu að geta tekið þátt í ….skoðum það 🙂
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.