Vekjum athygli á að í kvöld fimmtudaginn 13. sept kl. 20:00 verður haldinn kynningarfundur í Ljósinu fyrir ungt fólk sem hefur fengið krabbamein. Undanfarna tvo vetur hefur hópur á aldrinum 18-29 ára hist annað hvert fimmtudagskvöld. Þau hafa sjálf sett saman skemmtilega dagskrá.
Umsjónarmaður hópsins í fyrra var Gunnar Þór Andrésson íþróttafræðingur, en hópurinn er samstarfsverkefni, Ljóssins, Krafts og Skb.
Verið velkomin
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.