Kæru Ljósberar
Félagamaraþoninu lauk formlega í gær og viljum við þakka ykkur öllum sem lögðu hönd á plóginn. Við erum nú komin uppí 2.454 félaga og höfum við því safnað um 2000 nýjum félögum á einum mánuði. FRÁBÆRT.. það ríkti hátíðarstemning í Ljósinu okkar í gær og var dregið um glæsilega vinninga. Má þar nefna 3 vinninga í hótelgistingu með kvöldverði og morgunmat. 3 vinninga í Borgarleikhúsið og einn vinning á Argentínu. Við óskum vinningshöfum innilega til hamingju. Þótt félagamaraþoninu sé formlega lokið þá er ekkert því til fyrirstöðu að við höldum áfram og þeir sem safna 10 einstaklingum á blað fá áfram frítt í mat og nudd. Gaman væri að koma kerlingunni á toppinn en það eru 3000 félagar. Innilegar þakkir enn og aftur öll þið sem hjálpuðu okkur LIFI LJÓSIÐ
Okkur langar að vekja athygli á þeim 7 aðilum sem söfnuðu mest, en það voru þau:
Sigurður Hallvarðsson með 162 nýja félaga – hann var krýndur konungur Ljóssins
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.