Höfum opnað aftur eftir stutt sumarfrí.
Tækjaþjálfun byrjar í dag og verður á mán, mið, og föstd kl 13:00 eins og áður. Hægt að panta tíma hjá Hauki sjúkraþjálfara á föstudögum í mælingar og þolpróf
Jóga byrjar þriðjudaginn í næstu viku eða 17 ágúst.
Átakið „Á allra vörum" hefst formlega á föstudaginn nk eða 13 ágúst.
Þá mun Dorrit forsetafrú mæta í Ljósið kl. 11:00 til að taka á móti fyrsta varaglossinu.
Opnunarhátið átaksins Á allra vörum verður svo í Smáralind á laugardaginn, 14 ágúst , þar verður mikið um að vera, tónlistaratriði og margt fleira skemmtilegt fyrir alla fjölskylduna.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.