Nú líður að árlega Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka, sem verður þann 22 ágúst n.k, eins og undanfarin ár geta hlauparar hlaupið fyrir Ljósið á menningarnótt í íslandsbankahlaupinu.Á marathon.is er hægt að skrá sig sem hlaupara fyrir Ljósið. Endilega ef þið þekkið einhverja hlaupara að benda þeim á að hlaupa fyrir okkur, svo er hægt að heita á alla sem hlaupa fyrir Ljósið.
Allar nánari upplýsingar og skráning er á marathon.is
Klapplið Ljóssins
Undanfarin ár höfum við fjölmennt í klapplið til að hvetja alla hlaupara áfram og sérstaklega þá sem hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoni á menningarnótt.
|
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.