Gaman er að segja frá því að Ljósið er tilnefnt til samfélagsverðlauna Fréttablaðins 2009.
Þetta er í fjórða sinn sem Fréttablaðið veitir Samfélagsverðlaunin. Ferðlaunin eru veitt í fjórum flokkum en auk þess eru veitt ein heiðursverðlaun.
Lesendur blaðsins sendu inn vel á fjórða hundrað tilnefninga í janúar. Dómnefnd um Samfélagsverðlaunin vann úr tilnefningunum og eru nú fimm útnefndir í hverjum hinna fjögurra flokka. Í tilnefningunum endurspeglast fjölbreytt grasrótarstarf sem unnið er í samfélaginu.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.