Viðtöl við næringarfræðing
Hægt er að panta viðtal í næringarráðgjöf. Markmið viðtalanna er að veita einstaklingsmiðaða ráðgjöf byggða á áhugahvetjandi samtölum. Farið er yfir fæðissögu og fundnar leiðir til að setja raunhæf markmið til að bæta mataræðið eða leysa næringartengd vandamál.
Hægt er að panta tíma í næringarráðgjöf hjá Rannveigu Björnsdóttir, næringarfræðingi í Ljósinu, í síma 5613770.
Helstu upplýsingar
Fyrir hverja: Fyrir krabbameinsgreinda, hvenær sem er í meðferð eða endurhæfingu.
Umsjón: Rannveig Björnsdóttir, næringarfræðingur
Tímapantanir í síma 561-3770