Vertu velkomin/n í Ljósið
Til að stíga inn í endurhæfingarferlið eftir að hafa horft á myndbandið er þér velkomið að hafa samband við okkur í síma 561-3770 eða fylla formið út hér til hægri og við munum hafa samband við þig.
——
Alla þriðjudaga kl. 11:00 eru kynningarfundir hjá okkur fyrir 46 ára og eldri um starfsemi Ljóssins og þá þjónustu sem við bjóðum krabbameinsgreindum og aðstandendum þeirra.
Alla miðvikudaga kl. 11:00 eru kynningarfundir fyrir 16-45 ára. Fjölskyldumeðlimir eru velkomnir með á fundina.
Þegar þú kemur fyrst í Ljósið mun starfsmaður taka á móti þér og kynna þá starfsemi og þjónustu sem í boði er. Krabbameinsgreindir þurfa ekki að framvísa læknisbeiðni til að nýta sér endurhæfingarúrræði Ljóssins.
Í Ljósinu leggjum við áherslu á að:
- taka vel á móti öllum sem til okkar leita
- veita faglega þjónustu
- skapa heimilislegt og jákvætt andrúmsloft
- bjóða upp á hollan og góðan hádegisverð
- halda kostnaði þátttakenda í lágmarki
- sinna allri fjölskyldunni
Hér á heimasíðunni okkar má finna töluvert magn upplýsinga sem geta verið hjálplegar þegar einstaklingur greinist með krabbamein.
Ef svo stendur á að þú kemst ekki á þeim tíma sem kynningarfundir eru í boði bjóðum við þér að hafa samband við okkur í síma 561-3770 eða að koma við hjá okkur þegar þér hentar og fá þá stutta kynningu. Opið er mánudaga – fimmtudaga frá 8:30-16:00 og föstudaga 8:30-14:00.