Grunnfræðsla fyrir einstaklinga 16-45 ára, sem greinst hafa með krabbamein. Markmið grunnfræðslunnar er að einstaklingar í svipuðum sporum fái fræðslu og umræður og þannig stuðning til að takast á við breytt lífsskilyrði í kjölfar veikinda. Þessi námskeið hafa skapað mikla samkennd og veitt þátttakendum mikinn jafningjastuðning í gegnum árin.
Þeir fagaðilar sem koma að námskeiðinu hafa allir unnið með krabbameinsgreindum. Umsjón með námskeiðinu hafa iðjuþjálfar í Ljósinu, en auk þeirra koma aðrir fagaðilar með fræðslu á sínu sérsviði.
Það sem fjallað er um á námskeiðinu eru aðstæður og úrlausnir við breytingar í lífinu, hvernig við getum eflt eigin heilsu og mikilvægi þess að viðhalda og byggja upp orku og þrek. Hvernig greining og meðferð hefur áhrif á fjölskylduna og samskipti og áhrif á nánd og kynhegðun í veikindum.
Námskeiðið er í stöðugri þróun og því getur dagskráin breyst að einhverju leiti milli námskeiða þó grunnurinn sé sá sami.
Daglegt líf og hreyfing
Hólmfríður Einarsdóttir og Lousa Sif Mønster iðjuþjálfar ræðir áskoranir í daglegu lífi. Inga Rán og Stefán spjalla um mikilvægi hreyfingar í veikindum og fara yfir úrræðin sem Ljósið býður upp á.
Næring og heilsa
Elísabet Heiður Jóhannesdóttir gefur ráð og ræðir um mikilvægi næringar í endurhæfingarferlinu.
Fjölskyldan og veikindi, hvernig fer það saman?
Að greinast með krabbamein hefur áhrif á fjölskylduheildina og í dag ræðir Helga Jóna iðjuþjálfi og fjölskyldufræðingur við okkur um fjölskylduna og veikindin.
Sjálfstraust og hugarfar
Matti Ósvald markþjálfi tekur umræðuna um sjálfstraustið og hvernig það það hefur áhrif á líðan okkar.
Upplýsingar
Næsta námskeið hefst haust 2023
Hádegismatur er í boði fyrir þátttakendur eftir tímana frá kl 12:00-13:00
Umsjónaraðili er Hólmfríður Einarsdóttir, iðjuþjálfi og Louisa Sif Mønster, iðjuþjálfi
Fræðslan fer fram í húsnæði Ljóssins og á ZOOM