Myndlist fyrir lengra komna hentar þeim ljósberum sem hafa lokið grunnnámskeiðinu hjá okkur í Ljósinu eða hafa grunn í myndlist.
Lagt verður upp með skissubækur, akrílliti, blek, kol og kjark til að gera tilraunir, leita að sinni fjöl og njóta þess að skapa. Notuð verður blönduð tækni í málun og leiðsögn í lita- og formfræði ásamt myndbyggingapælingum er ávallt samtvinnuð vinnuferlinu. Einnig verður málað á masonít og eða mdf– spjöld og pappír. Skoðuð verða verk og vinnuaðferðir listafólks (myndbönd, bækur). Skissubækur eru notaðar til þess að halda utan um æfingarnar. Þær eru frábær verkfæri í myndsköpun. Skissubók er hugmyndabanki, vinnusvæði, hugleiðslustaður, minnispunktageymsla og svo margt fleira. Í henni er hægt að fletta upp til að koma sér í sköpunargírinn.
Helstu upplýsingar
Hefst 7. janúar 2026
Miðvikudagar:
12:30 – 15:30
Hvert námskeið er 6 vikur
Kennari:
Sara Vilbergs, myndlistakona
Rósa Sigrún Jónsdóttir, myndlistakona
Skráning og upplýsingar í síma 561-3770

