Leshópur Ljóssins er hugsaður fyrir Ljósbera sem hafa gaman af bóklestri.
Hópurinn hittist vikulega og ræðir bækur sem valdar hafa verið af hópnum. Allir eru að lesa sömu bókina á hverjum tíma, 50 – 150 síður á viku eftir því hver geta meðlima er hverju sinni og hversu spennandi bókin er. Það er ekki nauðsynlegt að koma alltaf lesin/nn en því fleiri sem lesa því skemmtilegri verða umræðurnar.
Sú sem fer fyrir hópnum heitir Anna Guðmundsdóttir
Endilega skráið ykkur í síma 561-3770.
Helstu upplýsingar
Fyrir hverja: Bókaorma í Ljósinu
Hvenær: Mánudagar kl. 13:00-14:30
Hvar: Café Milano
Umsjón: Anna Guðmundsdóttir