Í Ljósinu er starfandi jafningjahópur fyrir konur á aldrinum 46 ára og eldri sem greinst hafa með krabbamein.
Reynsla okkar sýnir fram á mikilvægi þess að skapa vettvang fyrir fólk sem hefur gengið í gegnum svipaða lífsreynslu til að koma saman og deila upplifun sinni. Að hitta jafningja, sem hafa innsýn í líðan, hugsanir og þau líkamlegu einkenni sem eru fylgifiskar krabbameins, getur hjálpað til við að takast á við nýjan veruleika.
Markmiðið með hópnum er að er að hitta aðra sem eru í svipaðri stöðu og gera eitthvað skemmtilegt saman. Einnig að vera stuðningur fyrir hvor aðra, deila reynslu og miðla góðum ráðum, fá fræðslu og ráðgjöf frá fagaðilum og njóta samveru með skemmtilegu fólki.
Hópurinn hittist reglulega ýmist í Ljósinu eða fer á ýmsa viðburði.
Helstu upplýsingar
Fyrir hverja: Konur sem greinst hafa með krabbamein
Hvenær: Fyrsta þriðjudag í mánuði kl.13:00
Umsjón: Fagfólk Ljóssins