Á miðvikudögum er opinn tími fyrir fólk að koma í Ljósið og fá kennslu í prjóni, hekli og útsaum. Þátttakendur koma sjálfir með efni og áhöld fyrir sín sérverkefni. Einnig er möguleiki að fá lánaða prjóna og nýta garnið sem er til í Ljósinu.

Hægt er að koma með sitt eigið prjón, hekl eða útsaum og njóra samverunnar í hópnum en einnig er tækifæri til þess að leggja sitt að mörkum og taka þátt í samfélagsverkefnum. Hópurinn hefur prjónað og afhent afraksturinn til mismunandi aðila. Prjónaðar húfur og kolkrabbar fyrir vökudeildar, engla teppi fyrir Gleym mér ei, Míu Magic dúkkur fyrir langveik börn, sokka, húfur, vettlinga fyrir frú Ragnheiði og sjúkrabíla bangsa fyrir sjúkrabílana. Að þessu sinni ætlar prjónahópur Ljóssins að taka þátt í sérstaklega fallegu samfélagsverkefni og prjóna neistahúfu fyrir litlu hjartveiku krílin á Íslandi. 

Hópurinn er frábært tækifæri fyrir byrjendur til að koma sér af stað en einnig fyrir lengra komna til að auka færnina í mynstrum og aðferðum.

Helstu upplýsingar

Miðvikudagar kl. 9:00 – 12:00

Umsjón: Louisa Sif Mønster, iðjuþjálfi

Hildur, Eyrún og Margrét

Prjónahópurinn er opinn hópur og ekki þarf að skrá sig.

Nánari upplýsingar í síma 561 – 3770.