Spilum saman – spilanámskeið

Finnst þér gaman að spila? Komdu og vertu með á spilanámskeiði, rifjaðu upp gamla takta og lærðu jafnvel nokkur ný spil. Á námskeiðinu spilum við aðallega með spilastokk en hver veit nema við grípum í önnur spil.

Námskeiðið verður þriðjudagana 10., 17., 24 og 31. mars kl. 14:00-15:45.

Berglind Gunnarsdóttir, tómstunda- og félagsmálafræðingur sér um námskeiðið.

Skráning í móttöku Ljóssins eða í síma 561 – 3770. Skráð er á biðlista og hringt er út til að staðfesta skráningar.

Helstu upplýsingar

Hefst 10. mars

Þriðjudaga kl. 14:00-15:45, í 4 skipti

Umsjón: Berglind Gunnarsdóttir, tómstunda- og félagsmálafræðingur