Á leirlistanámskeiði er kenndur grunninn í leir, notkun gifsmóta og plötuaðferðin. Við kennum ekki að renna leir, allt er handmótað með aðstoð gifsmóta og fleiri verkfæra. Einnig er farið yfir hvernig glerunga og oxið virkar, til að gefa hlutunum lokaútkomuna. Allt efni er á staðnum og gott úrval af glerungum. Aðeins efnisgjald er í námskeiðinu en því er haldið í lágmarki.
Við leikum okkur við að gera flotta hluti, t.d stjaka, skálar, diska og margt fleira og reynum eftir bestu getu að aðstoða við ykkar hugmyndir.
Leirinn er mjög róandi og heilandi handverk, það er algjörlega hægt að gleyma stað og stund að vinna með leir.
Byrjendur og lengra komnir velkomnir.
Helstu upplýsingar
Hefst 5. janúar 2026
12 vikna námskeið
Alla virka daga frá kl. 9:00-12:00,
mánudaga og þriðjudaga kl. 12:30-15:30
Leiðbeinendur: Erla, Fríða, Jóna og Melkorka
Aðeins er greitt fyrir efni
Skráning er nauðsynleg, upplýsingar í síma 561-3770

