Karlafræðsla – fræðslufundir fyrir karlmenn

Í Ljósinu bjóðum við upp á tvær ólíkar raðir fræðslufunda fyrir karlmenn. Annars vegar er það fræðsluröð um breytingar sem er sniðin fyrir þá sem eru að hefja endurhæfingarferlið. Hins vegar er það fræðsluröð um uppbyggingu sem hentar bæði þeim sem eru að  hefja endurhæfingu og þeim sem eru lengra komnir í ferlinu.

MARKMIÐ

Markmiðið er að karlmenn fái uppbyggjandi fræðslu og hafi gagn og gaman af að hitta aðra í sömu aðstæðum. Farið verður í gegnum það breytingarferli sem einstaklingar ganga í gegnum við það að veikjast. Það verða fyrirlestrar um mikilvægi þess að byggja sig upp andlega og líkamlega og mikilvægi þess að setja sér markmið

 

UMFJÖLLUNAREFNI NÁMSKEIÐA

Uppbygging – þriðjudaga kl. 14:00

10. febrúar – Eyþór Eðvarsson, stjórnendaþjálfari og ráðgjafi: Stjórnun álags og streitu
17. febrúar – Rannveig Björnsdóttir næringarfræðingur: Mikilvægi næringar í gegnum veikindaferli
24. febrúar – Björgvin H Björgvinsson, félags- og fjölskylduráðgjafi: Fjölskyldan og veikindi – hvernig fer það saman?
3. mars – Þjálfarar Ljóssins: Uppbygging eftir veikindi

Uppbygging

Hefst 10. febrúar 2026

Þriðjudagar kl. 14:00 – 15:30, í 4 skipti

Umsjón: Matti Osvald, heilsufræðingur og markþjálfi