Árið 2021 einkenndist af miklum vexti og þróun í öllu endurhæfingarstarfi Ljóssins.
Í annað sinn kemur ársskýrsla Ljóssins út í rafrænu formi. Þar er að finna ávörp, lykiltölur, það sem upp úr stóð á árinu auk ársreiknins.
Hér fyrir neðan getur þú sótt ársskýrslu Ljóssins 2021 á pdf formi.
Fyrir hönd stjórnar,
Erna Magnúsdóttir, forstöðukona Ljóssins
Litið yfir árið
Starfsmannahópurinn
Hjá Ljósinu starfa 29 manns í rúmlega 25 stöðugildum. Þeir fagaðilar sem starfa með Ljósinu í föstum stöðugildum eru; iðjuþjálfar, sjúkraþjálfarar, sálfræðingur, íþróttafræðingar, félagsráðgjafi, fjölskyldufræðingar, jógakennari, heilsunuddarar, matráður, móttökufólk, handverksfólk og fleiri.
Auk þess koma að starfinu verktakar eins og markþjálfar, hjúkrunarfræðingur, næringarráðgjafi, sjúkraþjálfari með sérmenntun í sogæðanuddi og fleiri. Þá koma að starfinu bæði fyrirlesarar eins og krabbameinssérfræðingar og fleiri að ógleymdu öllum þeim sjálfboðaliðum sem starfa fyrir Ljósið.
Meðal starfsaldur er 4,41 ár og meðalaldur starfsfólks er 45 ár.
Þjónustuþegar
Fimmtánda starfsár Ljóssins var með öðru sniði en áætlanir gerðu ráð fyrir. Í stað hátíðahalda var öll áhersla lögð á eflingu rafrænnar þjónustu við þjónustuþega Ljóssins og marþætta aðlögun vegna þeirra áskorana sem COVID-19 faraldurinn felur í sér. Þannig hefur áfram verið hægt að ná markmiðum þjónustunnar og styðja vel við skjólstæðinga Ljóssins.
Markmið Ljóssins er að hver sá sem greinist með krabbamein á Íslandi þekki og hafi greiðan aðgang að þeirri endurhæfingu sem Ljósið hefur upp á að bjóða. Af því leiðir að þjónustan þarf að henta öllum óháð aldri, kyni og búsetu.
Í skýrslunni má finna frekari upplýsingar um starfsemina og undirbúning nýrrar landsbyggðardeild Ljóssins.
Gildi Ljóssins
Gleði
Gleðin vekur lífskraft og von. Handverk, sköpun og almenn virkni veita gleði og jákvæðni sem við höfum að leiðarljósi í okkar starfi. Gleðin í Ljósinu er smitandi, fólk gleymir sér og finnur aukinn þrótt í gleðinni.
Gróska
Við viljum vaxa í starfi, erum sveigjanleg og tilbúin að gera breytingar. Við tökum vel í nýjungar og viljum blómstra í þeirri fjölbreyttu þjónustu sem veitt er.
Heilindi
Við erum vingjarnleg í fasi, sýnum samstöðu, traust, trúnað, virðingu og kærleik. Við erum heiðarleg, höfum opin samskipti, ræðum málin og leitum lausna. Við sinnum störfum okkar af alúð og trúmennsku og vinnum öll að sameiginlegu markmiði. Við samgleðjumst hvert öðru.
Fagmennska
Við leggjum mikið upp úr þverfaglegri samvinnu, fylgjumst vel með nýjungum og leitumst við að vera fremst í flokki hvað starfsemina varðar. Við vöndum málfar, vinnubrögð og virðum þagnarheit.