Aðstandendur – Fullorðnir

Um er að ræða námskeið þar sem skapaður er vettvangur fyrir aðstandendur frá 18 ára til að hittast og ræða um reynslu sína, áhyggjur og þá líðan sem fylgir því að eiga náinn ástvin sem greinist með alvarlegan sjúkdóm. Mikilvægt er að skapa traust og tryggja trúnað til að þátttakendur geti óhindrað tjáð sig um það sem liggur á þeim. Það er líka lögð áhersla á það að hlæja og njóta þess að vera á námskeiðinu. 

Á námskeiðinu er fjallað um áfallið sem flestir upplifa þegar fjölskyldumeðlimur greinist með krabbamein og rætt um þær tilfinningar sem oftast fylgja í kjölfarið. Áhrifarík reynslusaga aðstandanda sem kemur í tíma og ræðir um áhrif greiningar og meðferðar á fjölskyldu og umhverfið. Rætt er um samskipti, ábyrgð og stuðning. Farið er í orsakir og afleiðingar streitu og leiðir til að fyrirbyggja og vinna á streitu og fjallað er um hvernig viðhorf og hugsanir hafa áhrif á líðan og atferli og hvernig hægt er að vinna með það. 

Tímarnir eru sambland af fræðslu og umræðum. 

 

UMFJÖLLUNAREFNI NÁMSKEIÐS

  • Kynning, hlutverk aðstandenda, aðlögun og bjargráð
  • Að vinna með hugsanir að bættri líðan
  • Fjölskyldan, virk hlustun, tjáning og samskipti
  • Ná tökum á og fyrirbyggja streitu og kvíða
  • Sjálfsmyndin – Sjálfsstyrkur
  • Samantekt og samtal

Næstu námskeið

24. september á ZOOM

þriðjudagar kl. 16:30 í 6 skipti

Umsjón: Guðrún Friðriks, iðjuþjálfi og Elín Kristín, sálfræðingur

Námskeiðið kostar 5000 kr.

______

5. nóvember í Ljósinu

þriðjudagar kl. 16:30 í 6 skipti

Umsjón: Guðrún Friðriks, iðjuþjálfi og Kristín Hulda, sálfræðingur

Námskeiðið kostar 5000 kr.

Skráning 24. sept
Skráning 5. nóv