Námskeið fyrir börn og einnig unglinga sem eiga það sameiginlegt að vera aðstandendur. Börnin fá tækifæri að upplifa, skapa og tjá sig í gegnum leik og verkefni í öruggu og styðjandi umhverfi. Lögð er áhersla á að mæta þörfum hópsins og hvers og eins innan hans.

Á fyrsta fundi eru foreldrar eða náinn aðstandandi velkomin með.

Hópunum er aldursskipt. Aldur 6-9 ára og 10-13 ára.

1.-3. tími – Traust

  • Sjálfstraust
  • Hugrekki
  • Treysta öðrum
  • Treysta aðstæðum

4.-6. tími – Tengsl

  • Félagslegur og tilfinningalegur lærdómur
  • Samskipti
  • Samvinna
  • Tjáning
  • Samkennd

7.-9. tími – Sjálfsþekking

  • Aukin meðvitund varðandi færni, líðan og samskipti
  • Yfirfærsla á daglegt líf
  • Jákvæð reynsla

10. tími 

  • Síðasti tíminn
  • Foreldrar og systkini koma með, ef aðstæður leyfa, og hafa gaman saman

NÆSTA NÁMSKEIÐ

Hefst 18.september

miðvikudagar kl. 16:00 – 17:00 í 10 vikur

Fjöldi: 8-12 einstaklingar

Börn sem ekki hafa komið áður ganga fyrir á námskeiðið.

Umsjón: Helga Jóna, iðjuþjálfi og fjölskyldumeðferðafræðingur, og Guðrún Friðriks, iðjuþjálfi og náttúrumeðferðarfræðingur

Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu

Umsögn

„Barnanámskeiðið í Ljósinu fór fram úr úr mínum björtustu vonum. Það gaf börnunum mínum ákveðna festu í gegnum mitt ferli, leyfði þeim nálgast viðfangsefnið á skapandi vegu og losaði um marga hnúta í maganum.“

 

Skráning hér