Námskeið fyrir börn og einnig unglinga sem eiga það sameiginlegt að vera aðstandendur. Börnin fá tækifæri að upplifa, skapa og tjá sig í gegnum leik og verkefni í öruggu og styðjandi umhverfi. Lögð er áhersla á að mæta þörfum hópsins og hvers og eins innan hans.
Á fyrsta fundi eru foreldrar eða náinn aðstandandi velkomin með.
Hópunum er aldursskipt. Aldur 6-9 ára og 10-13 ára.
1.-3. tími – Traust
- Sjálfstraust
- Hugrekki
- Treysta öðrum
- Treysta aðstæðum
4.-6. tími – Tengsl
- Félagslegur og tilfinningalegur lærdómur
- Samskipti
- Samvinna
- Tjáning
- Samkennd
7.-8. tími – Sjálfsþekking
- Aukin meðvitund varðandi færni, líðan og samskipti
- Yfirfærsla á daglegt líf
- Jákvæð reynsla
NÆSTA NÁMSKEIÐ
Hefst 10. mars 2026
Þriðjudagar kl. 16:00 – 17:30, í 8 skipti
Fjöldi: 8-12 einstaklingar
Börn sem ekki hafa komið áður ganga fyrir á námskeiðið.
Umsjón: Helga Jóna Ósmann Sigurðardóttir, iðjuþjálfi og fjölskyldufræðingur og Berglind Gunnarsdóttir, tómstundafræðingur
Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu
Umsögn
„Barnanámskeiðið í Ljósinu fór fram úr úr mínum björtustu vonum. Það gaf börnunum mínum ákveðna festu í gegnum mitt ferli, leyfði þeim nálgast viðfangsefnið á skapandi vegu og losaði um marga hnúta í maganum.“

