Náttúrunæring

Á námskeiðinu læra þátttakendur að nota náttúruna til að styrkja sig, bæta sjálfstraustið og fegra sjálfsmyndina.

Á námskeiðinu kanna þátttakendur gróið landslag á rólegan og afslappaðan hátt þar sem skynjun stýrir ferðinni. Ýmsar rannsóknir sýna hversu góð áhrif útivera hefur á huga og líkama. Náttúran veitir skjól og líkaminn slakar ósjálfrátt á þegar ferðast er rólega um svæðið. Hugurinn fær hvíld þar sem áreiti eru í lágmarki og endurheimt verður betri.

  • Skapið verður betra
  • Sjálfstraust eykst
  • Blóðþrýstingur lækkar
  • Grufl og neikvæðar hugsanir verða færri
  • Einbeiting verður betri
  • Tengsl verða betri

 

Hópurinn hittist á fyrirframákveðnum stað þar sem verður stutt kynning á viðfangsefnum dagsins sem eru breytileg eftir veðri og aðstæðum. Sem dæmi um viðfangsefni er að ganga með forvitni og skoða liti, hlusta eftir hljóðum og finna eitthvað sem vekur gleði.

Næsta námskeið

Pop-up tími 23. júní

Umsjón: Guðrún F., iðjuþjálfi. Sólveig Hlín, sálfræðingur, Helga Jóna, iðjuþjálfi og fjölskyldumeðferðarfræðingur

Skráning og upplýsingar í síma 561-3770