Í síðustu viku fengum við heimsókn frá fulltrúum Breiðabliks sem komu færandi með styrk til Ljóssins sem safnaðist á síðasta ári. Karlalið Breiðabliks mætti ÍBV á Kópavogsvelli þann 15. september 2025 og var leikurinn spilaður til styrktar Ljóssins.
Með samstarfinu vildum við vekja athygli á starfi ungra karla í Ljósinu en liðsmenn klæddust sérhönnuðum Ljósatreyjum og eftir leikinn voru treyjurnar seldar á uppboði. Það safnaðist rúm milljón og mun hver króna koma að góðum notum og styðja beint við endurhæfingu krabbameinsgreindra.

Gauja Breiðfjörð, fyrir hönd Breiðabliks, afhenti Ernu Magnúsdóttur, framkvæmdarstýru Ljóssins styrk sem safnaðist í samstarfsverkefninu.
Hugmyndin kviknaði hjá tveimur starfsmönnum Breiðabliks, þeim Gauju Breiðfjörð og Eiði Ben Eiríkssyni. Bæði þekkja þau starf Ljóssins vel þar sem Gauja hefur sjálf stundað endurhæfingu hér og Eiður sótt stuðning sem aðstandandi. Við þökkum Breiðablik kærlega fyrir þetta fallega og skemmtilega verkefni.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






