Varst þú að greinast í annað sinn?

Námskeiðið Að greinast í annað sinn hefst miðvikudaginn 29. október.

Um er að ræða 4 skipta námskeið sem er í senn fræðsla og jafningjastuðningur fyrir þau sem eru að greinast í annað sinn.

Markmið námskeiðsins er að veita stuðning og fræðslu sem nýtist fólki m.a. við að öðlast meiri styrk og betri líðan til að stuðla að jafnvægi í daglegu lífi. Helstu viðfangsefni eru úrvinnsla tilfinninga og hugsana, að læra að hlusta á sjálfa/n sig og fyrirbyggja streitu.

Námskeiðið er kennt á miðvikudögum kl. 13:30-15:30, í fjögur skipti.

Kristín Hulda, sálfræðingur og Louisa Sif, iðjuþjálfi sjá um námskeiðið og fer skráning fram í móttöku Ljóssins í síma 561-3770 sem og rafrænt á vefsíðu Ljóssins. Smelltu hér til að skrá þig á námskeiðið.

 

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.