Í Ljósinu er alltaf eitthvað um að vera og núna í næstu viku ætlar hin frábæra Hekla Guðmundsdóttir að koma til okkar og vera með “Pop-up” tíma í bandvefslosun með boltum.
Bandvefur er stoðvefur sem umlykur og tengir saman mismunandi vefi og er milliliður í flutningi næringarefna og taugaboða. Ef rennsli milli bandvefslaga minnkar missir hann seigu teygju eiginleika sína sem getur haft áhrif á hreyfigetu. Ýmiskonar verkir og skert hreyfigeta geta verið einkenni frá stífum bandvef. Til dæmis getur stífni í herðablaði leitt upp í höfuð og stífni í mjöðm og læri getur haft mikil áhrif á bakið.
Bandvefslosun getur meðal annars hjálpað til við að:
- Draga úr verkjum og streitu
- Bæta líkamsstöðu
- Auka hreyfifærni og vellíðan
Tímarnir fara fram í æfingasal Ljóssins á eftirfarandi tímum:
- Fimmtudaginn 28. nóvember kl. 12:00-13:00
- Fimmtudaginn 12. desember kl. 12:00-13:00
Frábært tækifæri til að kynna sér bandvefslosun og áhrif hennar á líkamann. Við bendum áhugasömum á að ræða við þjálfara Ljóssins fyrir skráningu.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.