Ljósin frá Dynjanda lýsa upp Esjuna

Við teljum niður í Ljósafossinn okkar niður Esjuna!

Vinir okkar í Dynjanda hafa til fjölda ára verið duglegir að kíkja við hjá okkur í Ljósið í aðdraganda Ljósafoss niður Esjuhlíðar og færa okkur höfuðljós sem seld eru í styrktarsölu fyrir viðburðinn okkar í Esjunni. Árið í ár er engin undantekning og kom Steindór Gunnlaugsson færandi hendi með höfuðljós sem við ætlum að selja hér í Ljósinu fram að Ljósafossinum okkar niður Esjuhlíðar 9. nóvember.

Ljósin fást í afgreiðslu Ljóssins og kosta frá litlum 2500 krónum.

Ert þú komin/n með ljós fyrir gönguna?

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.