Fimmtudaginn 3. maí n.k. verður málþing um stöðu og stefnu endurhæfingar fólks sem greinst hefur með krabbamein og ber málþingið titilinn ,,Endurhæfinga alla leið“. Það er Endurhæfingarteymi krabbameinsgreindra á Landspítala, Krabbameinsfélag Íslands, Ljósið, Kraftur, Heilsustofnun NLFÍ og Reykjalundur sem boða til málþingsins.
Málþingið hefst kl. 15 og er í Hátíðarsal Hákóla Íslands. Hér er hlekkur á viðburðinn á Facebook.
Dagskrá málþings:
15:00 Ávarp og setning málþings, Alma Möller landlæknir
15:10 Susanne O. Dalton danskur sérfræðingur í endurhæfingu krabbameina:
Multidisciplinary care is essential in the rehabilitation of the cancer patients
during and after treatment. Experiences from Denmark.
– Hennar erindi fer fram á ensku
15:50 Agnes Smáradóttir sérfræðingur í krabbameinslækningum:
Hlutverk endurhæfingar í meðferð við krabbameinum – hver er staðan?
16:15 Kaffihlé
16:30 Einar Magnússon: Reynslusaga – 9 ár í endurhæfingu; að lifa með krabbameini
16:45 Jónatan Jónatansson: Reynslusaga – Endurhæfingin mín; vangaveltur í baksýnisspegli
17:00 Pallborðsumræður
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, Magnús Ólafsson, framkvæmdastjóri lækninga á Reykjalundi, Ingvar Þóroddsson, yfirlæknir endurhæfingadeilda á Kristnesi á Akureyri, Erna Magnúsdóttir, forstöðukona Ljóssins, Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins, Agnes Smáradóttir, sérfræðingur í krabbameinslækningum LSH og Margrét Grímsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar á Heilsustofnun NLFÍ.
17:35 Samantekt af hálfu fundarstjóra
Fundarstjóri: Sigrún Gunnarsdóttir.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.