Þeir birtast í ótal formum og eftir ótal leiðum styrkirnir sem okkur berast og hver og einn einasti þeirra kemur í góðar þarfir hér hjá okkur í Ljósinu.
Núna vekjum við athygli á að Davíð Ólafsson, löggiltur fasteignasali hjá Fasteignasölunni Borg hefur ákveðið að láta 60. þúsund krónur af hverri seldri eign renna til Ljóssins.
Ef þú ert í fasteignahugleiðingum er tilvalið að vera í sambandi við Davíð í síma 897-1533 eða með því að senda honum póst á david@fastborg.is
Okkar bestu þakkir Davíð
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.