Kynningarfundur í Ljósinu um mikilvægi göngu /hreyfingu og þeim gönguhópum sem Ljósið býður uppá.
mánudaginn 3. febrúar kl. 11:00 í Ljósinu
mánudaginn 3. febrúar kl. 11:00 í Ljósinu
Allir velkomnir.
Atli Már Sveinsson íþróttafræðingur mun stýra röskari göngunni fyrir Ljósið á mánudögum og miðvikudögum en Guðrún Ýr Birgisdóttir – fitnesskennari mun áfram stýra hægari göngu á þriðjudögum og fimmtudögum. Við erum að bjóða ennþá betri þjónustu
Endilega komið og heyrið fræðslu um mikilvægi hreyfingar – göngu.
Þau tvö ásamt Hauki sjúkraþjálfara taka vel á móti ykkur.
Takið gönguskóna með.
Hreyfing hefur margvísleg jákvæð áhrif á líkamann og stuðlar að:
- Sterkari hjartavöðva
- Auknu þoli
- Lægri blóþrýstingi
- Jákvæðum áhrifum á blóðfitu
- Auðveldar þyngdarstjórnun
- Minni hættu fullorðinssykursýki
- Betri almennri líðan
Hreyfing er einnig talin forvörn gegn:
- Beinþynningu
- Þunglyndi
- Liðagigt
- Félagslegri einangrun
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.