Nudd er góð leið til slökunar og vellíðunar. Aðstandendur eru líka velkomnir í nudd hjá Ljósinu. Við bjóðum uppá klukkutíma heildrænt nudd og slökun á eftir.
Gjaldið er lægra en almennt gerist eða 4.000,- Verið að vinna að þvi að fá líka inn svæðanuddara, auglýst síðar.
Heildrænt nudd tekur mið af væntingum og ástandi nuddþega hverju sinni,
slökun þegar það á við og meiri áhersla á vöðvabólgu og þreytueinkenni þar sem það er viðeigandi.
Meðferðin byggir á þeirri sýn að líkami, hugur og tilfinningar spili saman í einu og öllu og nuddmeðferðin þurfi að ná til þessa samspils. Notkun steina, volgra og kaldra, getur verið viðeigandi í sumum tilfellum til að kalla fram vellíðan og slökun.
Fjórir nuddarar eru nú að störfum í Ljósinu og öll með viðurkennd próf úr nuddskóla Íslands
Hægt að panta tíma í Ljósinu s. 5613770
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.