Nítjánda aldursár Ljóssins er gengið í garð og í ársskýrslu síðasta árs kennir margra grasa.

Hér fyrir neðan getur þú sótt ársskýrslu Ljóssins 2023 á pdf formi.

Fyrir hönd stjórnar,

Erna Magnúsdóttir, forstöðukona Ljóssins

Ársskýrsla 2023 PDF

Litið yfir árið

Fjöldi starfsmanna
Meðalstarfsaldur í árum

Starfsmannahópurinn

Hjá Ljósinu starfa 34 manns í um 28 stöðugildum. Þeir fagaðilar sem starfa með Ljósinu í föstum stöðugildum eru; iðjuþjálfar, sjúkraþjálfarar, sálfræðingur, íþróttafræðingar, félagsráðgjafi, fjölskyldufræðingar, jógakennari, heilsunuddarar, matráður, móttökufólk, handverksfólk og fleiri.

Auk þess koma að starfinu verktakar eins og markþjálfar, hjúkrunarfræðingur, næringarráðgjafi, sjúkraþjálfari með sérmenntun í sogæðanuddi og fleiri. Þá koma að starfinu bæði fyrirlesarar eins og krabbameinssérfræðingar og fleiri að ógleymdu öllum þeim sjálfboðaliðum sem starfa fyrir Ljósið.

Meðal starfsaldur er 4,3 ár.

Þjónustuþegar

Átjánda starfsár Ljóssins var annasamt en eins og alltaf fullt af gleði og grósku. Lagt var í vinnu að því að þróa breytta ferla svo að betur mætti halda utan um þjónustuþega, allt frá upphafi endurhæfingar til útskriftar.

Í skýrslunni má finna frekari upplýsingar um starfsemina og undirbúning nýrrar landsbyggðardeild Ljóssins.

Komur í Ljósið 2023
Fjöldi einstaklinga í þjónustu
Nýjir þjónustuþegar
Útskrifaðir þjónustuþegar

Gildi Ljóssins

Gleði

Gleðin vekur lífskraft og von. Handverk, sköpun og almenn virkni veita gleði og jákvæðni sem við höfum að leiðarljósi í okkar starfi. Gleðin í Ljósinu er smitandi, fólk gleymir sér og finnur aukinn þrótt í gleðinni.

Gróska

Við viljum vaxa í starfi, erum sveigjanleg og tilbúin að gera breytingar. Við tökum vel í nýjungar og viljum blómstra í þeirri fjölbreyttu þjónustu sem veitt er.

Heilindi

Við erum vingjarnleg í fasi, sýnum samstöðu, traust, trúnað, virðingu og kærleik. Við erum heiðarleg, höfum opin samskipti, ræðum málin og leitum lausna. Við sinnum störfum okkar af alúð og trúmennsku og vinnum öll að sameiginlegu markmiði. Við samgleðjumst hvert öðru.

Fagmennska

Við leggjum mikið upp úr þverfaglegri samvinnu, fylgjumst vel með nýjungum og leitumst við að vera fremst í flokki hvað starfsemina varðar. Við vöndum málfar, vinnubrögð og virðum þagnarheit.