Hvaða þjónusta er í boði þegar þú greinist með krabbamein eða ert aðstandandi.
Það er mikið áfall fyrir alla fjölskylduna þegar fjölskyldumeðlimur greinist með krabbamein. Þá hefst ferli þar sem einstaklingurinn tekst á við breyttar aðstæður og meðferðir við sjúkdómnum hefjast annaðhvort á spítala eða hjá viðeigandi meðferðaraðila.
Það er nauðsynlegt að huga bæði að andlegu og líkamlegu ástandi einstaklingsins og aðstandenda eftir greiningu, meðan á meðferð stendur og ekki síður eftir að henni lýkur því þá myndast oft tómarúm þegar spítalaferðum fækkar. Því fyrr sem stuðningurinn kemur inn því betur verður viðkomandi í stakk búinn til að takast á við breyttar aðstæður.
Einstaklingar hafa um nokkra staði um að velja til að fá stuðning og endurhæfingu. Einhverjum kann að finnast erfitt að vita hvert hann á að snúa sér, hver veitir hvaða þjónustu og hver réttur þeirra er sem greinast.
Þeir staðir sem fólk leitar helst til er Landsspítali Háskólasjúkarhús, Ljósið endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð og Krabbameinsfélag Íslands. Þessir meðferðar- og stuðningsstofnanir vinna allar sjálfstætt en hafa samvinnu að því leyti að starfsmenn vekja athygli á því sem í boði er á hverjum stað fyrir sig. Auk þess eru sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfarar, sálfræðingar, geðlæknar, heilsufræðingar og fleiri sem fólk getur leitað til. Við bendum einnig á vefinn brjóstakrabbamein.is en þar er að finna góðar upplýsingar um ráð og stuðning.