Stuðningsnet Krafts

Kraftur býður upp á stuðning fyrir ungt fólk sem hefur greinst með krabbamein og einnig fyrir aðstandendur þeirra. Stuðningsfulltrúar eru einstaklingar sem hafa annað hvort fengið krabbamein eða eru aðstandendur, og hafa lokið námskeiði í tengslum við Stuðningsnetið. Ef þú hefur áhuga á að fá að ræða við stuðningsfulltrúa getur þú haft samband í 470 2700. Sumir velja að ræða saman í síma meðan aðrir óska eftir að hitta stuðningsfulltrúa sinn. Gyða Eyjólfsdóttir ráðgjafarsálfræðingur heldur utan um stuðningsnet Krafts. Öll samtöl eru trúnaðarmál. Það getur verið hjálplegt að ræða við einhvern sem hefur gengið í gegnum svipaða reynslu og þú ert að ganga í gegnum, einhvern sem hefur þann skilning sem einungis fæst með því að upplifa hlutina sjálfur. Þú getur óskað eftir því að fá að ræða við einhvern sem er á svipuðum aldri og þú, af sama kyni, og/eða hefur greinst með sama tegund krabbameins og þú. Reynt er að verða við óskum þínum ef hægt er.     Umsókn um að gerast stuðningsfulltrúi Til að gerast stuðningsfulltrúi þurfa að minnsta kosti tvö ár að vera liðin frá því að þú laukst krabbameinsmeðferð þinni. Ef þú ert aðstandandi er einnig æskilegt að tvö ár séu liðinn frá því að ástvinur þinn lauk meðferð. Það er nauðsynlegt að þú sért einnig að mestu búin(n) að vinna úr þeim tilfinningum sem krabbameinið hafði í för með sér svo þú eigir auðveldara með að styðja aðra. Það er kostur ef þú ert hlýleg(ur), næm(ur) á líðan annarra, einlæg(ur), sveigjanleg(ur), dæmir ekki og átt auðvelt með að hlusta á aðra. Hafir þú áhuga á að gerast stuðningsfulltrúi getur þú sótt um með því að smella á “umsókn” hér á eftir. Eftir að þú hefur fyllt út umsóknina og sent hana inn, mun Gyða Eyjólfsdóttir sálfræðingur hafa samband við þig og boða þig í viðtal þar sem farið verður yfir umsóknina og reynslu þína af krabbameini. Ef niðurstaða ykkar beggja er sú að þú sért tilbúin(n) til að gerast stuðningsfulltrúi þá þarftu að ljúka námskeiði fyrir stuðningsfulltrúa en námskeiðið er fjögur kvöld, þrír klukkutímar í senn. Þegar því er lokið getur þú hafið störf sem stuðningsfulltrúi. Allir stuðningsfulltrúar þurfa að sækja hóphandleiðslu einu sinni í mánuði. Smelltu hér til að sækja um að verða stuðningsfulltrúi: