Lyngvist

Á þessu námskeiði í Ljósinu heldur hópurinn út í náttúruna með það að markmiði að spjalla saman og skapa skammtímaverk í margvíslegu formi.
Þar sem námskeiðið fer fram utandyra er mikilvægt að þátttakendur klæði sig eftir veðri og muni eftir sólarvörninni. Námskeiðið er frá 9:00 til 12:00 og gott að fólk hafi með sér smá nesti og eitthvað að drekka.
Markmið námskeiðsins er útivera, ekki útivist. Þátttakendur fá tækifæri til að njóta samveru, sköpunargleði og samtals við aðra í sambærilegri stöðu.

Staðsetning auglýst síðar með tölvupósti.

 

 

Á þessu námskeiði í Ljósinu heldur hópurinn út í náttúruna vítt og breitt um höfuðborgarsvæðið með það að markmiði að spjalla saman og skapa skammtímaverk í margvíslegu formi.

Þar sem námskeiðið fer fram utandyra er mikilvægt að þátttakendur klæði sig eftir veðri. Einnig vekjum við athygli á því að þörf er á að vera búin/n að skrá sig fyrir hádegi deginum áður vegna þess að lágmarksþátttöku er krafist í hvern tíma.

 

Markmið:

Markmið námskeiðsins er útivera, ekki útivist. Þátttakendur fái tækifæri til að njóta samveru, sköpunargleði og samtals við aðra í sambærilegri stöðu.

Næstu námskeið

Hefst 16. júní til 30. júní
Föstudagar, á milli klukkan 9:00 og 12:00.

þrjú skipti

Umsjón: Guðrún Friðriksdóttir, iðjuþjálfi og Elinborg Hákonardóttir, umsjónamaður handverks

Skráning og upplýsingar í síma 561-3770