Para/hjónanámskeið

Þar sem annar aðilinn (eða báðir) hefur greinst með krabbamein.

Veikindi geta aukið álag í samskiptum við maka. Gagnkvæmur stuðningur í hjónabandi er reglulega dýrmætur og því er mikilvægt að viðhalda góðum samskiptum og tengslum í parasambandinu. Á námskeiðinu fær fólk fræðslu og aukna færni til að bæta samskipti, styrkja tengsl og efla nánd

Dagskrá námskeiðsins er eftirfarandi:

  • Áhrif sjúkdóma á tengsl og samskipti í parsamböndum
  • Viðbrögð við áföllum og úrvinnsla tilfinninga
  • Nánd og kynlíf – Áslaug Kristjánsdóttir, hjúkrunarfræðingur og kynfræðingur, heldur fræðsluerindi

Nokkur ummæli um námskeiðið

  •  „Námskeiðið var bæði fræðandi og gaf tækifæri til umræðna og umhugsunar“
  •  „Gagnlegt að fá fræðslu og verkfæri, einnig að hitta fólk sem er í svipuðum aðstæðum og maður sjálfur“
  •  „Alveg ljómandi gott. Fengum upplýsingar og tæki til þess að vinna áfram út frá. Skemmtilegt og afslappað. Takk fyrir.“
  • „Gott námskeið. Margt gagnlegt og gott. Fær mann til að hugsa og opna sig meira. Gott að eiga samræður við önnur pör sem eru með manni á námskeiðinu. Mikilvægt hvað mikið er rætt en ekki bara hlustað.“
  • „Alveg ljómandi gott. Fengum upplýsingar og tæki til þess að vinna áfram út frá. Skemmtilegt og afslappað. Takk fyrir.“
  • „Þetta hefur gefið mér mikið. Hafði engar væntingar en fékk svör.“

Næsta námskeið

Næsta námskeið auglýst síðar

4 skipti

Námskeiðið kostar kr. 5.000 fyrir parið

Skráning og upplýsingar í síma 561-3770